|
Tobbi Villa Saltar myndir og fréttir. |
|
04.02.2012 16:28Á Þórshöfn að landa. Nú erum við staddir á Þórshöfn að landa um 1100 tonnum sem eru bæði að fara í vinnslu og bræðslu. Þennan afla tókum við í nótina um 40-50 sml. austur af Hvítingunum. Það var mikið af skipum á miðunum, bæði Íslensk og Norsk. Veðrið var aðeins að trufla okkur en það hefur ekki verið upp á marga fiska undanfarna viku og verður hann umhleypingasamur næstu daga. Það hefur verið svaðalegt magn af loðnu á þessum slóðum en hún hefur verið í mulningum um allan sjó og þar sem hún þéttir sig kemur hún saman í miklar torfur. Loðnan hefur ekki verið að þétta sig nema í ljósaskiptunum seinnipart dags og svo splundrast allt þegar líður á kvöldið. Hún hefur svo gefið færi á sér aftur um morguninn. Við lentum í því þennan túrinn að rífa illa hjá okkur nótina en við erum svo miklir jaxlar og náðum að redda nótinni án þess að þurfa að sigla í land og fá viðgert. En þeir voru hérna nokkrir sem rifu það illa að þurfa að sigla í land til viðgerða og þurfti t.d. Sigurður VE 15 að sigla alla leið til Vestmannaeyja með rifna nót því allar netagerðir hér á austur og norð-austurhorni landsins eru fullar af nótum og unnið á 12 tíma vöktum á sumum stöðum. Loðnan sem við vorum að kasta á færði sig einar 20 sml. vestar á milli kvölda svo að loðnan ætti að vera komin á grunnið eftir tvo til þrjá daga. Auk þess er hrognaprósentan komin í 10% og hefur loðnan verið að skríða á grunnið þegar hún er þetta langt gengin. Verið að dæla úr nótinni. Hrygna. Hér er hin Norska Christina E. að dæla úr nótinni í brælunni. Þetta er 2011 módelið af uppsjávarveiðiskipi og án efa eitt það allra fullkomnasta í heimi sem ekki frystir aflann um borð. Aflanum úr nótinni er vacuumdælt um borð. Hægt er að skoða betri myndir af skipinu með því að smella hér. Sigurður VE 15 í kvöldroðanum í gær. Þetta er 1960 módelið af uppsjávarveiðiskipi, keyptur til landsins sem síðutogari og hefur sennilega skilað mestum afla að landi af öllum Íslenskum skipum. Skrifað af Tobba Villa 31.01.2012 10:42Viðrar illa til nótaveiða. Þá erum við strákarnir komnir á nótaveiðar eða vorum öllu heldur á nótaveiðum. Við fórum frá Eyjum síðastliðinn föstudag og héldum áleiðis á miðin úti fyrir Austurlandi. Í fyrstu átti að nota trollið áfram en svo ákváðum við að slá undir nótina. Veðrið truflaði okkur svo aðeins en á laugardagskvöldið náðum við teimur köstum og fengum einungis um 140 tonn úr þeim til samans áður en það brældi. Við rifum nótina í báðum köstunum en náðum þó að rimpa henni saman í bæði skiptin. Við héldum svo bara sjó í brælunni með Norska flotanum en það eru ein 20 skip á bleyðunni frá Noregi. Í gærkvöldi gafst svo gluggi til að kasta og rann nótin í sjóinn rétt fyrir klukkan 18:00. Þetta gekk fínt, flott og sterk lóðning en þegar við vorum hálfnaðir að draga þá rifnaði nótin illa. Henni var bara spólað um borð því rifan var af þeirri stærðargráðu að erfitt er að eiga við hana hér um borð svo að hún fór bara niður með nótinni. Við sáum fljótlega að talsvert var í nótinni og þegar hún kom á síðuna gaf hún okkur um 700 tonn. Við skiptum svo beint yfir á trollið og erum að draga núna, komnir með um 1100 tonn. Það verður svo landað í Eyjum og er maður að vona að eftir þetta bræluskot núna verði loðnan komin á grunnið svo að grunnótaveiði geti byrjað í næstu veiðiferð. En það skýrist, klárum einn túr í einu. Hér er verið að dæla 700 tonnum úr nótinni. Í ágætis veðri en það hefur bara verið svo mikil kvika að þessi gamla nót bara þoldi þetta ekki. En hún skilaði þó sínum 850 tonnum í heildina. Gylfi, Heimir og Pétur. Á toginu núna fyrir skömmu. Það hefur verið bræla og kaldi til skiptis undanfarna sólarhringa og alltaf úr sömu vind-áttinni sem gerir það að verkum að mikill sjór hleðst upp á skömmum tíma ef hann fer aðeins að blása. Skrifað af Tobba Villa 26.01.2012 21:04Formlegri leit hætt eftir hörmulegt sjóslys við Noreg. Nú hefur formlegri leit verið hætt af þeim Einari G. Gunnarsyni, Gísla Garðarsyni og Magnúsi Þórarirni Daníelssyni sem saknað er eftir að Hallgrímur SI fórst djúpt úti við Noregsstrendur í aftakaveðri í gær. Ég vil senda öllum ættingjum og vinum mannana mínar dýpstu samúðarkveðjur. Ég læt fylgja með úrklippu úr Sjómannablaðinu Víking frá árinu 1940, en þá upphaflega birtist sálmur tileinkaður Íslenskum sjómönnum eftir Jón Magnússon, skáld ( 1896 - 1944). Ég vona svo að sá sem lifði finni þann styrk sem þarf til að sigrast á sínum raunum. Skrifað af Tobba Villa 25.01.2012 22:04Á landleið og eru Eyjarnar yndislegu áfangastaðurinn. Þá erum við peyjarnir búnir að fá í bátinn, eða hér um bil. Við erum með fjórar lestar undirslegnar fyrir manneldisvinnslu og erum við að áætla 1350 tonn í bátinn, og af því eru um 430 tonn sem fara til manneldis. Og já við erum á leið til Eyja með fyrsta farminn okkar á þessari vertíð en við höfum ekki verið þar síðan við fórum þann 3.janúar. Við þurfum að koma við á Neskaupsstað þar sem einn úr áhöfninni slasaði sig og verður að komast undir læknishendur sem allra fyrst. Við áætlum að verða í Eyjum annað kvöld. Annars er hugur flestra hjá þeim sjómönnum sem nú eru týndir í hafi eftir að Hallgrímur SI sökk skyndilega við Noregsstrendur. Eflaust er þetta hörmulega slys efst í huga allra sjómanna og sjómannsfjölskyldna nú enda hörmulegur atburður. Þegar þessi orð eru skrifuð hefur einum af fjórum úr áhöfn verið bjargað en þriggja er enn saknað. Þetta er loðna...... Og þetta eru Leifur og loðna. Skrifað af Tobba Villa 23.01.2012 12:3239 ár liðin frá upphafi eldgosins á Heimaey 23. janúar er merkilegur dagur í lífi hvers Eyjamanns, þó sérstaklega þeirra sem upplifðu gosið af eigin raun og jafnvel misstu aleigu sína um leið. En hvort það hafi verið kraftaverk eða eitthvað annað þá er hreint með ólíkindum að jafn miklar náttúruhamfarir skelli á við útidyrnar á stóru byggðarlagi og ekki ein sál týndi lífi eða slasaðist. Kristján Eldjárn, þáverandi forseti, komst vel að orði þegar hann sagði "Náttúruhamfarirnar í Vestmannaeyjum eru einn þeirra atburða sem gera öll orð vanmegnug. Og þó - þau má þó alltaf nota til að tjá hug sinn í þökk fyrir það, að svo óskaplegur háski við bæjarvegginn í einum fjölmennasta kaupstað landsins skyldi ríða yfir, án þess að nokkurt mannsbarn biði líftjón eða lima". Hver og einn uppliðfi þessa atburði á sinn hátt, margir snéru heim aftur á meðan gosið var enn í gangi en aðrir kusu að vera áfram á fastalandinu og treystu sér ekki til Eyja á nýjan leik. Við sem ekki vorum fædd á þessum tíma lítum sömu augum til atburðana og þeir sem þá upplifðu enda blasir hraunið, eldfjallið og afleiðingarnar við hverjum sem í Eyjum býr á hverjum degi og minnir á hversu litlu munaði og hversu lítil við erum þegar náttúran minnir á sig. Ég ætla ekki að skrifa einhvern risa pistil um jarðeldana á Heimaey heldur benda lesendum síðunnar á tengla inn á síður sem bæði fjalla um eldgosið og innihalda ljósmyndir frá atburðunum sjálfum. Þa voru ófá húsin sem fóru undir hraunið eða eyðilögðust vegna þess. Inn á síðunni hans Sigurgeirs ljósmyndara er mikið af myndum, allt frá fyrstu klukkustundum gossins og allt að uppbyggingu eftir atburðinn. Á vefnum Heimaslóð er mikil og góð umfjöllun og margar greinar um Heimaeyjargosið. Þar er líka góð umfjöllun um húsin sem hurfu undir hraun. Inn á Youtube er einnig að finna mikið af kvikmyndum um eldgosið. Skrifað af Tobba Villa 22.01.2012 15:41Löndun á Þórshöfn Rétt áðan skriðum við undir hjá löndunarkrananum hér á Þórshöfn eftir að Þorsteinn hafði klárað sig af. Ég tók nokkrar myndir um leið. Skipið alveg fullt hjá okkur nema við erum með nr.1 lestarnar kældar og erum með þar um 350 tonn af loðnu sem fer til vinnslu. En restin, 1000 tonn, fara í bræðslu. Jónas kokkur kemur alltaf í spottana og með honum er Stebbi löndunarkall hér á Þórshöfn. Þorsteinn að skríða út fyrir hafnargarðana og Geir ÞH liggur á innanverðri hafskipabryggjunni og bíður eftir netavertíð í Breiðafirðinum. Skrifað af Tobba Villa 21.01.2012 20:37Á landleið með fullt skip Strákarnir eru að ,,massa" þetta. Nú erum við á landleið eftir rúmlega sólarhrings stopp á miðunum og fengum við um 1350 tonn í fimm hölum. Þetta er annar túrinn okkar frá því ég bloggaði síðast. Við erum bæði að keyra afla í land til vinnslu og í bræðslu. Þórshöfn er málið núna en það hefur verið landburður af loðnu undanfarna viku og gengið vel hjá skipum fyrirtækisins. Þorsteinn ÞH hefur landað einum farmi í Eyjum og mér skilst að Álsey VE fari með sinn túr sem hún er í núna til Eyja. Enn sem komið er höfum við eingöngu notast við flottroll en þó eru nótaskip á svæðinu, Íslensk, Norsk og eitt frá Grænlandi. Það hefur ekki verið mikill kraftur í nótaveiðum en eitthvað kropp hefur verið hjá þeim þó og þá helst núna síðustu vikuna eða svo. Nú bíðum við bara eftir að loðnan komi upp á grunnin úti fyrir suð-austurlandi en grunnótaveiði hófst rétt fyrir mánaðarmótin jan-feb í fyrra. Við megum ekki trolla sunnar akveðinnar línu sem dregin er beint austur af Gerpi. Fyrirtækið hefur úr að spila miklum heimildum í loðnu nú þegar heildarkvótinn er að nálgast það sem hann var hér á árum áður. Þess vegna verður væntanlega ekkert slakað á enda standa loðnuveiðar einungis fram í miðjan marsmánuð. Ákveðið magn af loðnu er þó eyrnamerkt fyrir hrognatöku og hefur hún hafist upp úr miðjum febrúarmánuði svo að enn er talsverður tími í það. Hrognaprósentan í loðnunni er ekki kominn upp í 10% eins og er en hún þarf að vera komin yfir 20% áður en hrognataka hefst. Og hver veit nema að þetta verði síðasta loðnuvertíðin sem maður tekur þátt í í óbreyttri mynd. Nú þegar óðum styttist í einhverja ófreskju frá ríkisstjórninni sem þau kalla ,,nýtt fiskveiðifrumvarp". En það er búið að bola Jóni Bjarna út, þó svo að hann mátti alveg missa sín, og Steingrímur búinn að sölsa þetta undir sig á nýjan leik. En málið er varðar Jón Bjarna er meira og flóknara en svo að sameina eigi öll atvinnumálaráðuneytin undir eitt, hann bara hlýddi ekki silfurskottunni. En mér er sama hvað hver segir þá er það bara svo að þessi frumvörp þessarar ríkisstjórnar er varða sjávarútvegin hafa öll einskorðast af hatri og hugsun um ríkisvæðingu. Engar markaðs, þjóðarhags eða efnislegar ástæður eru þarna að baki því allir útreikningar og umræður um frumvörpin hafa verið á eina leið, neikvætt. Sem sagt, það hefur ekkert komið frá þeim sem kemur til með að efla sjávarútveginn, auka arðsemina, efla tengdar greinar, auka atvinnu innan greinarinnar eða gera hann samkeppnishæfari heldur þvert á móti. Allar breytingar á sjávarútvegi verður að gera af vel hugsuðu máli þannig að ekki illa fari, það er bara þannig og hvað sem öllum finnst þá skítur maður ekki einu mjólkandi kúna í fjósinu og étur hana. Góðar stundir. Skrifað af Tobba Villa 16.01.2012 13:51Á sjónum Nú erum við á sjónum en kláruðum að landa um 650 tonnum í gær sem fóru í vinnslu. Við erum búnir að landa eingöngu á höfðustað Norð-Austurlands, Þórshöfn, en Þorsteinn ÞH er á leið til Eyja með fyrstu loðnuna sem berst til F.E.S.-ins á þessu ári. Veiðarnar hafa gengið svona upp og niður hjá okkur en veiðin í þessum túr hefur þó verið upp á við en við lagfærðum hjá okkur pokann eins og við best gátum í síðustu löndun og er það að skila árangri. Við erum komnir með 500 tonn eftir tvö höl og eru allir nemar rauðir hjá okkur í þessum töluðum orðum. Hafró hefur lagt til aukningu á aflaheimildum í loðnu en Steingrímur, multi-ráðherra, hefur enn ekki gefið út kvótann en hann kemur. Það stefnir því í eins stærstu loðnuvertíð í mörg ár og er það ekkert nema jákvætt. Múkkinn, vinur minn. Loðnan streymir í lestarnar. Loðnan er fallegur fiskur. Hrygna og hængur. Skrifað af Tobba Villa 09.01.2012 22:58Flúið undan brælunni Ekki fengum við mikinn athafnafrið á miðunum í þetta skiptið. Við köstuðum fyrir hádegið og um kaffi var byrjað að blása og spáin segir að hér verði ekkert veiðiveður næstu tvo sólarhringana. Það var því ákveðið að stefna til lands eftir að hafa dælt halinu. Okkar eina hal þennan túrinn skilaði okkur um 350 tonnum í lestarnar. Þessi loðna fer sennilegast öll til manneldis hjá Ísfélaginu á Þórshöfn á Langanesi. Allur uppsjávarfloti fyrirtækisins er kominn á Þórshöfn eða er með stefnuna þangað. Guðmundur VE er að landa bæði í gúanó og frosnum afurðum, Þorsteinn ÞH er við það að renna í land og við og Álsey Ve erum ,,samfó" og verðum þar um 06:00 í fyrramálið. Á toginu í dag. Beðið í ganginum eftir að það verði fært aftur á rassgat vegna ágjafar. Verið að dæla og einhver vitleysingur þarna við kassann..... Ok, þetta er Leifur. Loðna flæðir í lestarnar. Maður vonar svo að þessi vetur verði skárri en sá í fyrra en hann var fremur erfiður veðurfarslega séð með mörgum brælum og mikilli ölduhæð. En það sem af er þessum nýbyrjaða vetri hefur ekki verið spennandi og er stór floti skipa að flýja í land þessa stundina og eru mjög mörg skip og bátar með stefnuna á austfjarðarhafnir. Skrifað af Tobba Villa 09.01.2012 22:31Innanhúsmót í Bubbles. Það hefur verið keppt mikið í netleiknum Bubbles undanfarna daga. Mest hefur keppnin þó verið á milli þriggja aðila sem háð hafa drengilega keppni um efsta sætið og titilinn ,, Bubbles-kóngurinn " . Þeir Hallgrímur, Pétur og Jónas, sem allir eru komnir langt á fertugs aldurinn, hafa nýtt hvern einasta dauða tíma sem gefist hefur í keppni í þessum netleik. Ég hef ekki nægilega kynnt mér reglur eða tilgang leiksins en miðað við keppnisskapið og geðsveiflurnar þá er þetta eitthvað rosalegt. Eins og staðan stendur í dag þá er yfirvélstjórinn að busta undirmann sinn og kokkinn. Hann hefur skorað yfir 500.000 stig en næsti maður á eftir honum er kokkurinn Jónas með einungis 330.670 stig. Pétur er svo neðstur með eitthvað um 250.000 stig en hann segist vera nýbyrjaður. Keppnin verður háð út loðnuvertíðina 2012 svo að nóg er eftir fyrir Jónas og Pétur til að skáka Halla úr efsta sætinu. Halli segir að það sé kalt á toppnum. Jónas er mjög efnilegur og situr verðskuldað í öðru sæti. Pétur segist verða snöggur að rúlla upp þeim sem eru í sætunum fyrir ofan hann. Skrifað af Tobba Villa 09.01.2012 12:34Fyrstu loðnunni landað. Þá erum við búnir að fá einu sinni í bátinn og landa því á Þórshöfn. Eftir hádegið s.l. fimmtudag skriðum við á loðnumiðin sem voru þá 80 sml. ANA af Fonti. Við köstuðum fljótt og gekk ágætlega hjá okkur í túrnum miðað við allt. Við fengum allan pakkan, bras, bilerí og brælu en náðum svo að setja í okkur á tveimur sólarhringum en við vorum með allar lestar nema tvær fullar af fiski í bræðslu. Hinar tvær voru undir vinnslufisk. Við komum á Þórshöfn á sunnudagsmorgun og erum nú komnir á miðin á nýjan leik og förum að hífa brátt fyrsta halið. Þetta eru kvikyndin. Álsey VE var að landa þegar við komum á Þórshöfn í alveg kolvitlausu veðri. Við bræðslukanntinn á Þórshöfn. Verið að taka úr steis 1. Skrifað af Tobba Villa Flettingar í dag: 73 Gestir í dag: 24 Flettingar í gær: 666 Gestir í gær: 229 Samtals flettingar: 1268276 Samtals gestir: 435164 Tölur uppfærðar: 9.2.2012 06:18:14 |
Vafraðu umTobbi Villa Nafn: Þorbjörn VíglundssonFarsími: 6905585Tölvupóstfang: tobbiv(hjá)internet.isMSN netfang: tobbiv25(hjá)hotmail.comAfmælisdagur: 13 feb. 1975Staðsetning: Vestmannaeyjar, Capri norðursins.Heimasími: 5612822Faðir: Villi VillaMóðir: Jóna TobbaUm: Ég er Eyjapeyji og hef starfað sem sjómaður mest allt mitt líf.Tenglar
Eldra efni
clockhere ![]() Verð fertugur eftir eftir 3 ár 4 daga |